{"id":2792,"date":"2025-09-05T09:38:48","date_gmt":"2025-09-05T09:38:48","guid":{"rendered":"https:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/?p=2792"},"modified":"2025-09-05T10:02:32","modified_gmt":"2025-09-05T10:02:32","slug":"dagbok-fra-vodlavik-28072025-kl-2130","status":"publish","type":"post","link":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/?p=2792","title":{"rendered":"Dagb\u00f3k fr\u00e1 V\u00f6\u00f0lav\u00edk &#8211; 28072025 &#8211; kl. 21:30"},"content":{"rendered":"\n<p><em>21:30<\/em><\/p>\n<p>Kominn \u00ed tr\u00fassarah\u00fasi\u00f0. Setti Hnotu yfir \u00ed Karlssk\u00e1la. H\u00fan hr\u00fdtur or\u00f0i\u00f0 svo h\u00e1tt, h\u00e6rra en \u00e9g segir Esther, og okkur l\u00edst eiginlega ekki or\u00f0i\u00f0 \u00e1 blikuna. Meira veseni\u00f0 \u00e1 \u00feessum hundum alltaf hreint.<\/p>\n<p>Er einn, krakkarnir hj\u00e1 m\u00f6mmu sinni. Voru a\u00f0 skrifa n\u00f6fnin \u00e1 vinunum s\u00ednum ni\u00f0ur \u00e1 bla\u00f0. Einskonar \u201e\u00feakkl\u00e6tisdagb\u00f3k\u201c eins og er \u00ed t\u00edsku a\u00f0 halda. \u00c9g \u00e6tti kannski gera \u00fea\u00f0 l\u00edka en m\u00e9r vir\u00f0ist au\u00f0veldara a\u00f0 halda svona \u201evan\u00feakkl\u00e6tisdagb\u00f3k\u201c eins og \u00e9g geri \u00feessa dagana. I\u00f0unn fyllti heilt bla\u00f0, skilyr\u00f0in fyrir vinskap ekkert mj\u00f6g str\u00f6ng, en El\u00edas var bara me\u00f0 nokkur n\u00f6fn \u00e1 listanum s\u00ednum. Hann virtist p\u00ednu sk\u00faffa\u00f0ur og \u00feetta snerti a\u00f0eins vi\u00f0 m\u00e9r. \u00dea\u00f0 er svo dapurlegt a\u00f0 eiga f\u00e1a vini. \u00c9g asna\u00f0ist til a\u00f0 fara \u201elei\u00f0r\u00e9tta\u201c hann, segja honum a\u00f0 hinn e\u00f0a \u00feessi v\u00e6ru n\u00fa l\u00edka vinir hans og svo \u00e6tti hann aukinheldur nokkrar vinkonur. Hann m\u00e6tti ekki gleyma \u00fev\u00ed.<\/p>\n<p>En hann er bara einmana. Saknar vina. \u00dea\u00f0 tekur \u00e1 a\u00f0 vera \u00ed V\u00f6\u00f0lav\u00edk. T\u00edminn svo lengi a\u00f0 l\u00ed\u00f0a, svo margar klukkustundir sem \u00fearf a\u00f0 fylla. \u00dea\u00f0 \u00fearf a\u00f0 liggja fyrir \u201ea\u00f0ger\u00f0ar\u00e1\u00e6tlun\u201c, eins og v\u00e9r emb\u00e6ttismenn segjum. Vi\u00f0 \u00feyrftum kannski a\u00f0 undirb\u00faa \u00feau betur n\u00e6st \u00fe.e. ef \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur n\u00e6st. Kannski f\u00e6 \u00e9g ekki a\u00f0 ver\u00f0a sk\u00e1lav\u00f6r\u00f0ur aftur \u00fat af \u00feessum dagb\u00f3karskrifum. \u00c9g skrifa svo l\u00edti\u00f0 um h\u00fasverkin. Skrifa bara um hugsanir. Um hugsanir sem fjalla um hugsanir. Hva\u00f0a gagn er af svona hugsu\u00f0i \u00ed sk\u00e1lag\u00e6slu ef eitthva\u00f0 k\u00e6mi upp \u00e1?<\/p>\n<p>En \u00e9g geri samt hitt og \u00feetta. Held h\u00fasinu hreinu, tala vi\u00f0 gesti, segi \u00feeim til eftir bestu getur og svo framvegis. M\u00e9r finnst \u00feetta bara ekki \u00ed fr\u00e1s\u00f6gur f\u00e6randi. Kannski vegna \u00feess a\u00f0 \u00e9g er li\u00f0t\u00e6kur og r\u00famlega \u00fea\u00f0 \u00ed heimilisverkunum. Kann a\u00f0 elda mat. Kann a\u00f0 \u00fer\u00edfa kl\u00f3sett. Kann a\u00f0 skr\u00fabba og sk\u00fara. \u00deessi verk eru m\u00e9r ekki framandi og stundum stend \u00e9g mig a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00f6funda karla \u00e1 m\u00ednum aldri sem hafa aldrei \u00feeytt rj\u00f3ma. Karlana sem neitu\u00f0u a\u00f0 skipta um bleiur \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 v\u00f3 a\u00f0 karlmennsku \u00feeirra. \u00de\u00e1 hef\u00f0i \u00e9g kannski geta\u00f0 skrifa\u00f0 um hversdagsl\u00edfi\u00f0 af einhverri \u00e1str\u00ed\u00f0u. Allavega af n\u00e1kv\u00e6mni.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 eru a\u00f0rir hlutir sem koma m\u00e9r \u00ed opna skj\u00f6ldu. \u00dari\u00f0 segir m\u00e9r a\u00f0 hv\u00edldarp\u00falsinn s\u00e9 kringum sext\u00edu og sex a\u00f0 jafna\u00f0i. Nokku\u00f0 gott hef\u00f0i \u00e9g haldi\u00f0. Horfi \u00e9g \u00e1 l\u00ednuriti\u00f0 s\u00e9 \u00e9g sm\u00e1 topp \u00ed morgun. \u00de\u00e1 stressa\u00f0ist \u00e9g a\u00f0eins upp \u00fev\u00ed tetrast\u00f6\u00f0in \u00ed sk\u00e1lanum f\u00f3r a\u00f0 blikka og lj\u00f3si\u00f0 var rautt. \u00dea\u00f0 veit au\u00f0vita\u00f0 aldrei \u00e1 gott. Vakti hj\u00e1 m\u00e9r ugg, ef svo m\u00e6tti segja, \u00fev\u00ed \u00e9g kann ekkert \u00e1 svona gr\u00e6jur og \u00fe\u00f3tt l\u00edkurnar s\u00e9u hverfandi \u00fe\u00e1 getur au\u00f0vita\u00f0 komi\u00f0 upp s\u00fa sta\u00f0a h\u00e9r \u00ed einskismannslandi a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feurfi a\u00f0 n\u00e1 sambandi vi\u00f0 umheiminn \u00e1n tafar. \u00dea\u00f0 g\u00e6ti komi\u00f0 \u00edsbj\u00f6rn, ekki satt? K\u00e6ra dagb\u00f3k?<\/p>\n<p>\u00c9g pr\u00f3fa\u00f0i a\u00f0 \u00fdta \u00e1 einhverja takka, kveikti og sl\u00f6kkti en \u00fea\u00f0 breytti engu. \u00deetta var ekki alveg n\u00f3gu gott, hugsa\u00f0i \u00e9g, og velti fyrir m\u00e9r hvort \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 l\u00e1ta vita af \u00feessu. \u00c1kva\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 til og gefa \u00feessu s\u00e9ns \u00e1 a\u00f0 reddast af sj\u00e1lfu s\u00e9r. Reynslan hefur kennt m\u00e9r a\u00f0 stundum er eins og gr\u00e6jur l\u00e6kni sig sj\u00e1lfar. Eina sem ma\u00f0ur \u00fearf a\u00f0 gera er a\u00f0 gleyma \u00feeim, h\u00e6tta a\u00f0 veita \u00feeim athygli og vandam\u00e1li\u00f0 hverfur af sj\u00e1lfu s\u00e9r.<\/p>\n<p>&#8230;<\/p>\n<p>\u00cd g\u00e6rkv\u00f6ldi komu nokkrir hreind\u00fdrakarlar \u00ed heims\u00f3kn. Snorri m\u00e1gur minn og nokkrir f\u00e9lagar hans. \u00deeir voru \u00e1 sexhj\u00f3li, me\u00f0 allar gr\u00e6jur, h\u00e1t\u00e6knisj\u00f3nauka og \u00e9g veit hva\u00f0 og hva\u00f0. H\u00f6f\u00f0u liti\u00f0 vi\u00f0 fyrr um daginn, horft \u00e1 fjalli\u00f0, kortlagt atl\u00f6guna og svo f\u00f3ru \u00feeir \u00e1 stj\u00e1. Komu svo aftur \u00feegar vi\u00f0 vorum n\u00fdb\u00fain a\u00f0 \u00fer\u00edfa eftir kv\u00f6ldmatinn. G\u00e1fum \u00feeim kaffi og spj\u00f6llu\u00f0um vi\u00f0 \u00fe\u00e1 frameftir kv\u00f6ldi. Me\u00f0 \u00feeim var lei\u00f0s\u00f6guma\u00f0ur sem Esther sag\u00f0i m\u00e9r, eftir a\u00f0 \u00feeir voru farnir, a\u00f0 v\u00e6ri sonur Magn\u00fasar Stef lj\u00f3\u00f0a\u00fatgefanda \u00e1 F\u00e1sk. \u00dea\u00f0 fannst m\u00e9r \u00e1hugavert, einhverra hluta vegna.<\/p>\n<p>\u00deetta var soldi\u00f0 fyndi\u00f0. \u00c9g haf\u00f0i ekki \u00feessar uppl\u00fdsingar \u00e1 me\u00f0an \u00e9g var a\u00f0 spjalla vi\u00f0 hann og ein fur\u00f0uleg hugsun hvarfla\u00f0i a\u00f0 m\u00e9r \u00e1 me\u00f0an hann var hj\u00e1 okkur: M\u00e9r fannst eins og hann beindi \u00f6llum spurningum s\u00ednum a\u00f0 Esther, leita\u00f0i eftir augnkontakti vi\u00f0 hana. Og j\u00e1, \u00e9g var \u00f6rl\u00edti\u00f0 hissa. Ekki hvumsa, alls ekki, en p\u00ednu hissa \u00fev\u00ed \u00e9g hef teki\u00f0 eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 gestirnir okkar beina yfirleitt \u00f6llum spurningum a\u00f0 m\u00e9r, einkum og s\u00e9r \u00ed lagi ef \u00fe\u00e6r sn\u00faast um prakt\u00edska hluti, hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9 h\u00e6gt a\u00f0 komast yfir \u00e1nna, hvernig ve\u00f0ursp\u00e1in s\u00e9 o.s.frv. Vegna kyns er reikna\u00f0 me\u00f0 a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 \u201eyfirsk\u00e1lav\u00f6r\u00f0ur\u201c og a\u00f0 Esther s\u00e9 trygglynd eiginkona yfirsk\u00e1lavar\u00f0ar. E\u00f0a eitthva\u00f0 svolei\u00f0is. En Frosti beindi m\u00e1li s\u00ednu til hennar og \u00e1 me\u00f0an var minn innri d\u00edal\u00f3gur einhvern veginn svona:<\/p>\n<p>\u201eHann s\u00e9r \u00ed gegnum mig. Hann skynjar matr\u00edark\u00eduna \u00e1 Karlsst\u00f6\u00f0um \u00ed V\u00f6\u00f0lav\u00edk.\u201c<\/p>\n<p>En svo \u00e1varpa\u00f0i Esther hann me\u00f0 nafni og \u00fe\u00e1 skildi \u00e9g a\u00f0 \u00feau \u00feekktust. Hann hlaut a\u00f0 vera F\u00e1skr\u00fa\u00f0sfir\u00f0ingur. Varla gamall sk\u00f3labr\u00f3\u00f0ir \u00fev\u00ed hann hlaut a\u00f0 vera talsvert eldri en konan m\u00edn en \u00fe\u00f3 veit ma\u00f0ur aldrei n\u00fa til dags me\u00f0 aldur. Aldur flestra \u00e1 reiki \u00feegar allir kaupa f\u00f6tin s\u00edn \u00ed Dressman og H&amp;M. \u00deetta er ekki eins og \u00e1\u00f0ur fyrr \u00feegar menn skiptu yfir \u00ed fataverslun Gu\u00f0steins eftir \u00fer\u00edtugt og kl\u00e6ddu sig eftir aldri. N\u00fana getur ma\u00f0ur s\u00e9\u00f0 sj\u00f6tuga karla \u00ed eins f\u00f6tum og einhver tuttugu og fimm \u00e1ra og ef ekki v\u00e6ri fyrir gr\u00e1a h\u00e1ri\u00f0 og hrukkurnar (og Parkinson-skj\u00e1lftann) v\u00e6ri au\u00f0velt a\u00f0 fara \u00ed aldursvillt.<\/p>\n<p>Hva\u00f0 um \u00fea\u00f0. Hann beindi or\u00f0um s\u00ednum a\u00f0 Esther vegna fyrri kynna. \u00deau voru sveitungar einsog \u00e9g komst a\u00f0 eftir a\u00f0 \u00feeir voru farnir. \u00dea\u00f0 er \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g skammast m\u00edn \u00f6rl\u00edti\u00f0 fyrir \u00feessar hugsanir og einmitt \u00feess vegna \u00e6tla \u00e9g a\u00f0 skrifa um \u00fe\u00e6r h\u00e9r, k\u00e6ra dagb\u00f3k. \u00c9g er a\u00f0 nota \u00feig eins og hugr\u00e6na atferlisme\u00f0fer\u00f0. Er \u00fe\u00e9r sama?<\/p>\n<p>Semsagt: Hva\u00f0a helv\u00edtis minnim\u00e1ttarkennd er \u00feetta alltaf hreint?<\/p>\n<p>\u00c9g veit a\u00f0 \u00e9g er me\u00f0 \u201eimposter syndrome\u201c og \u00fea\u00f0 er n\u00e1tt\u00farulega e\u00f0lilegt. \u00c9g er ekki sk\u00e1lav\u00f6r\u00f0ur dags daglega. \u00c1kva\u00f0 bara a\u00f0 ganga inn \u00ed \u00feetta hlutverk. Hef\u00f0i alveg eins geta keypt m\u00e9r hv\u00edtan slopp og \u00fe\u00f3st vera skur\u00f0l\u00e6knir.<\/p>\n<p>En &#8211; hugsa\u00f0i \u00e9g &#8211; af hverju \u00e9g \u00e1 n\u00e1lum en Esther svona k\u00fal \u00e1 \u00fev\u00ed?<\/p>\n<p>Af hverju tekur h\u00fan \u00feessu ekki jafn alvarlega og \u00e9g?<\/p>\n<p>Vegna \u00feess a\u00f0 h\u00fan veit, hugsa\u00f0i \u00e9g, a\u00f0 \u00e1byrg\u00f0in liggur hj\u00e1 m\u00e9r, karlinum. \u00dea\u00f0 reikna allir me\u00f0 a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 me\u00f0 allt \u00e1 hreinu. H\u00fan &#8211; konan &#8211; er stikkfr\u00ed og h\u00fan veit \u00fea\u00f0. \u00c9g sn\u00f6ggreiddist og \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 tala vi\u00f0 hana vi\u00f0 fyrsta t\u00e6kif\u00e6ri. Spyrja hana hvort h\u00fan \u00e6tla\u00f0i alltaf a\u00f0 vera einhver freerider h\u00e9r \u00ed V\u00f6\u00f0lav\u00edk og l\u00e1ta mig sj\u00e1 um allt. \u00c6tla\u00f0i h\u00fan bara a\u00f0 hlusta \u00e1 hlj\u00f3\u00f0b\u00e6kur og prj\u00f3na \u00ed heila viku? \u00c1tti \u00e9g a\u00f0 sj\u00e1 um rest? Pl\u00fas eldamennsku og a\u00f0 hafa ofan af fyrir b\u00f6rnunum? Hven\u00e6r \u00e6tla\u00f0i h\u00fan a\u00f0 st\u00f6kkva \u00ed hylinn? Af hverju getur h\u00fan ekki haldi\u00f0 gestum upp \u00e1 snakki eins og \u00e9g geri? \u00c6tlar h\u00fan bara a\u00f0 tala vi\u00f0 gesti ef \u00feeir eru sveitungar og \u00e6ttingjar? Veit h\u00fan ekki hva\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fatheimtir mikla orku fyrir intr\u00f3vert eins og mig a\u00f0 tala vi\u00f0 \u00f3kunnuga?<\/p>\n<p>Allt \u00ed einu var \u00e9g farinn a\u00f0 gn\u00edsta t\u00f6nnum en \u00fea\u00f0 veitti \u00fev\u00ed enginn athygli. \u00deau voru a\u00f0 tala um einhverja andskotans F\u00e1skr\u00fa\u00f0sfir\u00f0inga sem \u00e9g haf\u00f0i aldrei hitt og aldrei heyrt tala\u00f0 um og \u00e9g haf\u00f0i ekkert til m\u00e1lanna a\u00f0 leggja.<\/p>\n<p>\u00c9g afsaka\u00f0i mig og f\u00f3r yfir \u00ed sk\u00e1lann okkar og t\u00f3k einn leik \u00ed Nintendo. Kom svo til baka talsvert sk\u00e1rri af gremjunni.<\/p>\n<p>\u201eHvert f\u00f3rstu?\u201c spur\u00f0i Esther.<\/p>\n<p>\u201eBara, hj\u00f3 eldivi\u00f0 og svona,\u201c svara\u00f0i \u00e9g.<\/p>\n<p>&#8230;<\/p>\n<p>Seinna um kv\u00f6ldi\u00f0 sag\u00f0i Esther m\u00e9r a\u00f0 Frosti v\u00e6ri sonur Magn\u00fasar lj\u00f3\u00f0amanns og \u00feetta var\u00f0 kveikjan a\u00f0 s\u00ed\u00f0asta spjalli dagsins.<\/p>\n<p>M\u00e9r fannst \u00feeir eins og svart og hv\u00edtt. M\u00e9r fannst \u00fea\u00f0 jafnvel \u00fe\u00f3tt \u00e9g \u00feekkti hvorugan miki\u00f0. \u00deetta voru yfirbor\u00f0ssamanbur\u00f0arranns\u00f3knir \u00e1 fe\u00f0gum en \u00fea\u00f0 er n\u00fa bara eins og \u00fea\u00f0 er. Vi\u00f0 erum endalaust a\u00f0 fella d\u00f3ma yfir f\u00f3lki me\u00f0 afskaplega f\u00e1brotnum uppl\u00fdsingum. \u00c9g var a\u00f0 hitta Frosta \u00ed fyrsta sinn og svo \u00feekki \u00e9g Magn\u00fas eing\u00f6ngu sem lj\u00f3\u00f0amann. Kynntist honum fyrir tuttugu \u00e1rum s\u00ed\u00f0an \u00feegar \u00e9g ba\u00f0 hann um a\u00f0 sj\u00e1 um \u201ev\u00edsnahorni\u00f0\u201c \u00ed Austurglugganum, h\u00e9ra\u00f0sfr\u00e9ttabla\u00f0inu sem \u00e9g ritst\u00fdr\u00f0i upp \u00far aldam\u00f3tum. Hann t\u00f3k verkefni\u00f0 alvarlega og sendi m\u00e9r engan leirbur\u00f0 e\u00f0a kl\u00e1mfengnar v\u00edsur. \u00deetta var \u201ehardcore\u201c st\u00f6ff, mj\u00f6g vanda\u00f0 og \u00fatp\u00e6lt. J\u00e1 og eiginlega of h\u00e1timbra\u00f0 fyrir bla\u00f0i\u00f0 mitt. Bla\u00f0 sem \u00e9g haf\u00f0i \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 gera a\u00f0 fyrsta \u201etabloid\u201c bla\u00f0i landsbygg\u00f0arinnar.<\/p>\n<p>Magn\u00fas hefur veri\u00f0 m\u00e9r mj\u00f6g vinveittur og hr\u00f3sa\u00f0 m\u00e9r fyrir b\u00e6kurnar m\u00ednar. Jafnvel fyrir framan anna\u00f0 f\u00f3lk og \u00fe\u00e1 hef \u00e9g g\u00edrast allur upp og \u00fe\u00e1 endurgjalda\u00f0 hr\u00f3si\u00f0 n\u00e1tt\u00farulega og hr\u00f3sa\u00f0 Magn\u00fasi \u00ed h\u00e1stert fyrir b\u00f3ka\u00fatg\u00e1funa. Sem hann \u00e1 au\u00f0vita\u00f0 skili\u00f0 en skjall kallar fram meira skjall. \u00dea\u00f0 er bara l\u00f3g\u00edskt.<\/p>\n<p>Einn fyndinn \u00fat\u00fard\u00far \u00e1\u00f0ur en \u00e9g held \u00e1fram: \u00cd fyrra ba\u00f0 Magn\u00fas mig um a\u00f0 sj\u00e1 um lj\u00f3\u00f0ahorni\u00f0 \u00ed austfirska \u00e1tthagabla\u00f0inu Glettingi sem hann hefur teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0 ritst\u00fdra \u00ed nokkur \u00e1r. \u00c9g sag\u00f0i strax j\u00e1. Sag\u00f0i \u00fea\u00f0 mikinn hei\u00f0ur.<\/p>\n<p>\u201eHei\u00f0ur?\u201c sag\u00f0i Magn\u00fas \u00fe\u00e1 \u00ed s\u00edmann og r\u00e6skti sig. \u201e\u00c9g veit n\u00fa ekkert um \u00fea\u00f0.\u201c<\/p>\n<p>M\u00e9r fannst \u00feetta brilliant tilsvar. Hef haft \u00feetta eftir honum hundra\u00f0 sinnum, nota\u00f0 \u00feetta til a\u00f0 gera mig fyndinn.<\/p>\n<p>&#8230;<\/p>\n<p>En \u00e9g spur\u00f0i Esther \u00fat \u00ed Frosta um kv\u00f6ldi\u00f0, af hverju var hann ekki \u201ek\u00falturbarn\u201c, eins og sagt er, me\u00f0 h\u00e1lskl\u00fat og allar gr\u00e6jur. H\u00fan svara\u00f0i eftir bestu getu. \u00deekkti hann ekki pers\u00f3nulega, \u00feekkti hann bara eins og F\u00e1skr\u00fa\u00f0sfir\u00f0ingur \u00feekkir F\u00e1skr\u00fa\u00f0sfir\u00f0ing og Nor\u00f0fir\u00f0ingur \u00feekkir Nor\u00f0fir\u00f0ing. Gaf honum toppme\u00f0m\u00e6li og \u00e9g ger\u00f0i \u00fea\u00f0 l\u00edka eftir \u00feessi stuttu kynni.<\/p>\n<p>Hann spur\u00f0i miki\u00f0, var forvitinn um okkur (innan e\u00f0lilegra marka) og marg\u00feakka\u00f0i fyrir veitingarnar. Hann spur\u00f0i mig hvers vegna \u00e9g drykki ekki kaffi \u00e1 kv\u00f6ldin sem reyndist f\u00ednt sprek \u00e1 samr\u00e6\u00f0ub\u00e1li\u00f0 og allir tj\u00e1\u00f0u sig um kaffivenjur s\u00ednar. Frosti var alveg me\u00f0 \u00feetta.<\/p>\n<p>\u00c9g \u00feekki suma hreind\u00fdralei\u00f0s\u00f6gumenn sem eru h\u00e1lfger\u00f0ir leikarar. Performa fyrir \u00feetta li\u00f0 sem kemur austur a\u00f0 skj\u00f3ta hreind\u00fdr e\u00f0a g\u00e6s. Bj\u00f3\u00f0a upp \u201ean authentic hunting experience\u201c \u00fear sem \u00feeir p\u00f3sa sem svona \u201eg\u00f6fuga villimannat\u00fdpan\u201c sem vi\u00f0 sj\u00e1um \u00ed annarri hverri \u00edslenskri b\u00ed\u00f3mynd, oftast leikin af Ingvari Sig. \u201eAn authentic hunting experience\u201c sem endar \u00e1 lj\u00f3smynd af vei\u00f0imanni \u00e1 hnj\u00e1num me\u00f0 f\u00f3rnarlambinu, bl\u00f3\u00f0rau\u00f0u og steindau\u00f0u. F\u00e1 hana svo senda \u00ed t\u00f6lvup\u00f3sti og \u00fe\u00e1 b\u00fai\u00f0 a\u00f0 skala fyrir allar ger\u00f0ir samf\u00e9lagsmi\u00f0la.<\/p>\n<p>Nei, Frosti var ekki s\u00fa t\u00fdpa. E\u00f0a m\u00e9r fannst ekki. Svara\u00f0i \u00f6llum m\u00ednum heimskulegu spurningum \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 votta\u00f0i fyrir hroka e\u00f0a neinni \u00fe\u00f6rf til a\u00f0 gera sig brei\u00f0an. \u00c9g kann a\u00f0 meta \u00fea\u00f0. \u00dea\u00f0 vir\u00f0ist sem l\u00f6gm\u00e1l \u00ed mannlegum samskiptum a\u00f0 \u00feeir sem hafa ekkert a\u00f0 sanna eru alltaf n\u00e6s. Stj\u00f6rnust\u00e6lar og mannal\u00e6ti plaga eing\u00f6ngu \u00fe\u00e1 sem eru fullir af efasemdum um sig. \u00deessu hef \u00e9g teki\u00f0 eftir. Ekki bara hj\u00e1 \u00f6\u00f0rum. L\u00edka hj\u00e1 sj\u00e1lfum m\u00e9r. \u00c9g var einu sinni poppari \u00ed fj\u00f3r\u00f0u deild og gat veri\u00f0 lei\u00f0inlegur vi\u00f0 poppara \u00ed fimmtu deild en ekkert nema sme\u00f0jan \u00feegar kom a\u00f0 poppurum \u00ed efri deildum.<\/p>\n<p>Kr\u00e6st, hr\u00e6\u00f0ilegt a\u00f0 hugsa um \u00feetta. Man eftir sj\u00e1lfum m\u00e9r, blindfullum fyrir ne\u00f0an Egilsb\u00fa\u00f0, a\u00f0 smja\u00f0ra fyrir Gumma J\u00f3ns \u00ed S\u00e1linni (og \u00e9g \u00feoli ekki S\u00e1lina hans J\u00f3ns m\u00edns!) e\u00f0a, God forbid, Gr\u00e9tari \u00d6rvars \u00ed Stj\u00f3rninni. T\u00edu m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar hreytti \u00e9g einhverjum \u00f3notum \u00ed J\u00f3n Hafli\u00f0a og Orra og \u00feurfti svo a\u00f0 bi\u00f0ja \u00fe\u00e1 afs\u00f6kunar \u00ed \u00feynnkunni.<\/p>\n<p>\u00c9g g\u00e6ti \u00e6lt n\u00fana. Sem hl\u00fdtur a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a a\u00f0 \u00e9g \u00e1 einmitt a\u00f0 rifja \u00feetta upp og skrifa um. \u00cd sm\u00e6stu sm\u00e1atri\u00f0um.<\/p>\n<p>Note to self!<\/p>\n<p>&#8230;<\/p>\n<p>\u00c9g t\u00f3k einn s\u00e9ns \u00ed samtalinu vi\u00f0 hreind\u00fdrakallana og spur\u00f0i hvort \u00feetta v\u00e6ri ekki fyrir l\u00f6ngu or\u00f0i\u00f0 \u201er\u00edkramannasport\u201c en m\u00e9r fannst \u00feeir allir taka undir \u00fea\u00f0. E\u00f0a \u00feeir sem voru a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed spjallinu ger\u00f0u \u00fea\u00f0. A\u00f0rir h\u00f6f\u00f0u dregi\u00f0 sig \u00ed hl\u00e9 og \u00fea\u00f0 heyr\u00f0ust margfaldar hrotur berast \u00far herberginu vi\u00f0 hli\u00f0 bor\u00f0salarins. \u00deetta er d\u00fdrt sport, kostar nokkur hundru\u00f0 \u00fe\u00fasund kr\u00f3nur, allur pakkinn, og kostna\u00f0urinn flj\u00f3tur a\u00f0 h\u00e6kka \u00feegar menn \u00feurfa a\u00f0 b\u00ed\u00f0a \u00feokuna af s\u00e9r, drekkandi kaffi \u00ed Karlssk\u00e1la, haldandi sk\u00e1laver\u00f0i upp \u00e1 snakki.<\/p>\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 er l\u00edti\u00f0 m\u00e1l a\u00f0 l\u00e1ta svona t\u00far n\u00e1lgast millj\u00f3nina,\u201c sag\u00f0i einn \u00feeirra sem \u00e9g haf\u00f0i ekki n\u00e1\u00f0 nafninu \u00e1. \u00c9g hlusta\u00f0i \u00e1 \u00fe\u00e1 tala og dr\u00f3 m\u00edna eigin \u00e1lyktun: Hi\u00f0 svokalla\u00f0a \u201evenjulega f\u00f3lk\u201c gerir r\u00e1\u00f0stafanir. \u00dea\u00f0 sameinast um eina skepnu og skiptir me\u00f0 s\u00e9r kostna\u00f0i. En \u00fea\u00f0 breytir \u00fev\u00ed ekki a\u00f0 \u00feetta er enginn \u00f6reigamatur sem menn s\u00e6kja hinga\u00f0 austur \u00e1 land. \u00d6reigarnir ver\u00f0a a\u00f0 gera s\u00e9r a\u00f0 g\u00f3\u00f0u gr\u00edsahakk \u00ed frau\u00f0bakka \u00e1 s\u00e9rst\u00f6ku tilbo\u00f0i \u00ed B\u00f3nus. \u00deetta er hvorki n\u00fdtt n\u00e9 frumlegt f\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0ilegt inns\u00e6i en svona tekur misskipting \u00e1 sig \u00fdmsar myndir. Vi\u00f0 getum ekki \u00f6ll bor\u00f0a\u00f0 hreind\u00fdrabollur.<\/p>\n<p>\u00c1\u00f0ur en f\u00e9lagarnir f\u00f3ru spur\u00f0i \u00e9g hvort \u00feeir hef\u00f0u eitthva\u00f0 vit \u00e1 tetrast\u00f6\u00f0vum, a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri rautt blikkandi lj\u00f3s sem benti til \u00feess a\u00f0 ekki v\u00e6ri allt me\u00f0 felldu. \u00c9g l\u00fdg \u00fev\u00ed ekki en \u00feeir r\u00e9ttu allir upp h\u00f6nd. \u00c9g f\u00e9kk Snorra til a\u00f0 sko\u00f0a t\u00e6kin me\u00f0 m\u00e9r og hann pr\u00f3fa\u00f0i a\u00f0 \u00fdta \u00e1 einhverja takka, a\u00f0 m\u00e9r s\u00fdndist handah\u00f3fskennt.<\/p>\n<p>\u201eHva\u00f0 ertu a\u00f0 gera?\u201c spur\u00f0i \u00e9g.<\/p>\n<p>\u201e\u00c9g veit \u00fea\u00f0 ekki,\u201c sag\u00f0i hann. \u201eVarstu b\u00fainn a\u00f0 pr\u00f3fa a\u00f0 kveikja og sl\u00f6kkva?\u201c<\/p>\n<p>\u201eJ\u00e1.\u201c<\/p>\n<p>\u201e\u00d3kei,\u201c sag\u00f0i hann og t\u00f3k kerfi\u00f0 \u00far sambandi. Stakk \u00fev\u00ed svo aftur \u00ed samband og h\u00e1lfri m\u00edn\u00fatu s\u00ed\u00f0ar var komi\u00f0 gr\u00e6nt lj\u00f3s.<\/p>\n<p>\u201eTakk, Snorri minn.\u201c<\/p>\n<p>\u201eL\u00edti\u00f0.\u201c<\/p>\n\n\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>21:30 Kominn \u00ed tr\u00fassarah\u00fasi\u00f0. Setti Hnotu yfir \u00ed Karlssk\u00e1la. H\u00fan hr\u00fdtur or\u00f0i\u00f0 svo h\u00e1tt, h\u00e6rra en \u00e9g segir Esther, og okkur l\u00edst eiginlega ekki or\u00f0i\u00f0 \u00e1 blikuna. Meira veseni\u00f0 \u00e1 \u00feessum hundum alltaf hreint. Er einn, krakkarnir hj\u00e1 m\u00f6mmu sinni. Voru a\u00f0 skrifa n\u00f6fnin \u00e1 vinunum s\u00ednum ni\u00f0ur \u00e1 bla\u00f0. Einskonar \u201e\u00feakkl\u00e6tisdagb\u00f3k\u201c eins og er <a class=\"read-more\" href=\"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/?p=2792\">&hellip;&nbsp;<span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-2792","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2792","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=2792"}],"version-history":[{"count":4,"href":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2792\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2796,"href":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2792\/revisions\/2796"}],"wp:attachment":[{"href":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=2792"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=2792"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=2792"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}