{"id":2739,"date":"2025-08-10T08:31:23","date_gmt":"2025-08-10T08:31:23","guid":{"rendered":"https:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/?p=2739"},"modified":"2025-08-10T09:09:18","modified_gmt":"2025-08-10T09:09:18","slug":"dagbok-fra-vodlavik-27072025-kl-11","status":"publish","type":"post","link":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/?p=2739","title":{"rendered":"Dagb\u00f3k fr\u00e1 V\u00f6\u00f0lav\u00edk \u2013 27072025 &#8211; kl. 11"},"content":{"rendered":"\n<p><em>Kl. 11:00<\/em><\/p>\n<p>\u00deetta sem \u00e9g skrifa\u00f0i \u00ed morgun var einskonar hugarleikfimi. Hva\u00f0 gerist \u00ed l\u00edfi manns, s\u00edmaf\u00edkils, \u00feegar hann lendir \u00ed a\u00f0st\u00e6\u00f0um sem \u00feessum?<\/p>\n<p>\u00cd \u00f3bygg\u00f0um. \u00cd m\u00ednu eigin <em>Overlook Hotel<\/em>. H\u00e9r \u00e6tti \u00e9g a\u00f0 skrifa sk\u00e1lds\u00f6gu einhvern t\u00edmann sem v\u00e6ri \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r bara dagb\u00f3k. Hugsanir m\u00ednar eru alveg n\u00f3gu hr\u00e6\u00f0ilegar til a\u00f0 bera uppi svona <em>Blair Witch pr\u00f3jekt<\/em>\u00a0\u00ed V\u00f6\u00f0lav\u00edk.<\/p>\n<p>&#8230;<\/p>\n<p>T\u00edminn hreyfist svo h\u00e6gt \u00ed V\u00edkinni. I\u00f0unn spur\u00f0i \u00e1\u00f0an hva\u00f0 klukkan v\u00e6ri. \u00c9g sag\u00f0i a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri a\u00f0 byrja a\u00f0 ganga n\u00edu.<\/p>\n<p>\u201e\u00cd alv\u00f6ru?\u201c sag\u00f0i h\u00fan. \u201e\u00c9g h\u00e9lt a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0 koma h\u00e1degi.\u201c<\/p>\n<p>\u00c9g sag\u00f0ist hafa haldi\u00f0 \u00fea\u00f0 l\u00edka.<\/p>\n<p>H\u00e9r er ekkert sem gleypir t\u00edmann. Ekkert Facebook. Ekkert Netflix. Engar fer\u00f0ir \u00ed b\u00fa\u00f0ina. Ef \u00fea\u00f0 vantar ost \u00fe\u00e1 bara vantar ost. Ef \u00fea\u00f0 vantar pest\u00f3 \u00fe\u00e1 bara vantar pest\u00f3. Vi\u00f0 erum eins og vitaver\u00f0ir \u00e1 Dalatanga. Engar vinaheims\u00f3knir. Bara t\u00faristaheims\u00f3knir. Enginn sem hringir. Ekkert h\u00f3pspjall milli vina \u00e1 messenger.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 eru bara nokkur einf\u00f6ld verkefni sk\u00e1lavar\u00f0ar sem b\u00ed\u00f0a m\u00edn (\u00e6tla a\u00f0 reita l\u00fap\u00ednu \u00ed dag &#8211; \u00e9g \u00c6TLA a\u00f0 reita l\u00fap\u00ednu \u00ed dag) og l\u00f6ng, l\u00f6ng, l\u00f6ng b\u00f3k eftir \u00feunglyndan norskan rith\u00f6fund. \u00dea\u00f0 gerist ekkert \u00ed henni heldur.<\/p>\n<p>&#8230;<\/p>\n<p>\u00deegar \u00e9g var laus \u00far vi\u00f0jum hr\u00e6\u00f0slunnar, e\u00f0a hva\u00f0 sem \u00feetta n\u00fa var sem kom yfir mig \u00ed g\u00e6rkv\u00f6ldi \u00e1 str\u00f6ndinni, st\u00f3\u00f0 \u00e9g upp, stir\u00f0ur, og f\u00f3r a\u00f0 leika vi\u00f0 Hnotu. E\u00f0a, \u00e9g hugsa raunar a\u00f0 \u00feetta hafi gerst \u00ed \u00f6fugri r\u00f6\u00f0. \u00dea\u00f0 br\u00e1\u00f0i af m\u00e9r \u00feegar \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 leika vi\u00f0 hundinn. F\u00f3r a\u00f0 hugsa um eitthva\u00f0 anna\u00f0. \u00dea\u00f0 er l\u00f3g\u00edskt. F\u00e6r\u00f0i til \u00feungami\u00f0juna og voil\u00e0!<\/p>\n<p>N\u00fdr og betri ma\u00f0ur!<\/p>\n<p>\u00deess vegna eru n\u00fdjustu sj\u00e1lfshj\u00e1lparb\u00e6kurnar uppfullar af \u00feeirri hugmynd a\u00f0 ma\u00f0ur eigi a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed sj\u00e1lfbo\u00f0ali\u00f0astarfi. \u00deegar ma\u00f0ur hj\u00e1lpar \u00f6\u00f0rum hj\u00e1lpar ma\u00f0ur sj\u00e1lfum s\u00e9r, segja \u00fe\u00e6r. En alltaf skal \u00feetta vera spurning um mann sj\u00e1lfan. \u00c9g hj\u00e1lpa \u00f6\u00f0rum \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 hj\u00e1lpa \u00e9g M\u00c9R, M\u00c9R, M\u00c9R.<\/p>\n<p>Kannski samviskuj\u00f6fnun s\u00e9 hugtak eins og kolefnisj\u00f6fnun. \u00d3, m\u00e9r l\u00ed\u00f0ur svo illa! \u00c9g hef\u00f0i ekki \u00e1tt a\u00f0 r\u00e6na h\u00fassj\u00f3\u00f0inn! \u00c9g hef\u00f0i ekki \u00e1tt a\u00f0 da\u00f0ra vi\u00f0 barnap\u00eduna!<\/p>\n<p>Ekkert m\u00e1l, vinur. Taktu a\u00f0 \u00fe\u00e9r ABC-barn og samviskujafna\u00f0u \u00feig.<\/p>\n<p>\u00c9g myndi g\u00faggla \u00feetta or\u00f0 ef \u00e9g g\u00e6ti.<\/p>\n<p>&#8230;<\/p>\n<p>Krakkarnir voru \u00ed stu\u00f0i, \u00ed eigin heimi, alveg eins og \u00feau \u00e1ttu a\u00f0 vera \u00ed V\u00f6\u00f0lav\u00edk, \u00ed eltingarleik vi\u00f0 \u00f6ldur. \u00d3, hva\u00f0 \u00feetta er heilbrigt allt saman! Eitthva\u00f0 svo, eitthva\u00f0 svo, norskt!<\/p>\n<p>Hnota hlj\u00f3p til m\u00edn, sannur labrador, ofandandi me\u00f0 lafandi tungu, drullug upp fyrir haus. \u00c9g haf\u00f0i rifi\u00f0 upp hv\u00f6nn \u00fear sem \u00e9g h\u00edmdi \u00e1hyggjurfullur undir kletti nokkrum m\u00edn\u00fatum \u00e1\u00f0ur sem \u00e9g kasta\u00f0i \u00ed brimi\u00f0. Hundurinn l\u00f3\u00f0beint \u00e1 eftir. Beint \u00ed brimi\u00f0. F\u00e9kk yfir sig sj\u00f3 og hvarf \u00ed nokkur andart\u00f6k. I\u00f0unn f\u00f3r a\u00f0 skellihl\u00e6ja, loksins stu\u00f0, en svo var\u00f0 m\u00e9r liti\u00f0 \u00e1 son minn. S\u00e1 skelfingu. Hann h\u00e9lt a\u00f0 s\u00ed\u00f0asta stund Hnotu v\u00e6ri a\u00f0 renna upp.<\/p>\n<p>\u00c9g \u00feekki \u00feennan svip.<\/p>\n<p>\u00d3, hva\u00f0 \u00e9g \u00feekki \u00feennan svip.<\/p>\n<p>&#8230;<\/p>\n<p>\u00c9g \u00feurfti a\u00f0 hugga str\u00e1kinn minn. Segja honum a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i fari\u00f0 \u00fat \u00ed brimi\u00f0 og s\u00f3tt Hnotu hef\u00f0i h\u00fan lent \u00ed vandr\u00e6\u00f0um og \u00e9g meinti \u00fea\u00f0. \u00c9g hef\u00f0i gert \u00fea\u00f0. Vi\u00f0 ger\u00f0um m\u00e1li\u00f0 upp og \u00e9g lofa\u00f0i a\u00f0 kasta ekki fleiri sprekum \u00ed \u00f6lduna.\u00a0<\/p>\n<p>&#8230;<\/p>\n<p>Drengurinn minn er vi\u00f0kv\u00e6m t\u00fdpa. Hefur veri\u00f0 \u00fea\u00f0 fr\u00e1 degi eitt. Minnir \u00e1 f\u00f6\u00f0ur s\u00edn sennilega. \u00c6tli \u00fea\u00f0 s\u00e9u ekki p\u00ednu sens\u00edt\u00edvar t\u00fdpur sem halda dagb\u00f3k \u00ed \u00f3bygg\u00f0um og skrifa um b\u00f6rnin s\u00edn. Sitja \u00e1 steini upp \u00ed fjalli og skrifa um hva\u00f0 \u00feeir s\u00e9u sens\u00edt\u00edvar t\u00fdpur.<\/p>\n<p>\u00deetta kom flj\u00f3tt \u00ed lj\u00f3s og allir sem umgangast EO taka eftir \u00feessu. Hann er sens\u00edt\u00edv t\u00fdpa. Finnur til me\u00f0 f\u00f3lki og d\u00fdrum. Skammar vini sem drepa grasma\u00f0ka. Sem hann hefur gefi\u00f0 n\u00f6fn.\u00a0<\/p>\n<p>Og hva\u00f0 get \u00e9g sagt?<\/p>\n<p>\u00c9g er stoltur af \u00feessu. Stoltur af \u00fev\u00ed a\u00f0 str\u00e1kurinn minn finni til. Hafi samkennd. Geti sett sig \u00ed spor annarra en svo \u00e9g s\u00e9 hei\u00f0arlegur, k\u00e6ra dagb\u00f3k, \u00fe\u00e1 hef \u00e9g stundum \u00e1hyggjur af \u00feessu. \u00dev\u00ed samf\u00e9lagi\u00f0 er ekki alltaf hanna\u00f0 fyrir okkur sens\u00edt\u00edvu t\u00fdpurnar. Sem fara \u00e1 b\u00f6mmer eftir erfi\u00f0a fr\u00e9ttat\u00edma. Taka gagnr\u00fdni illa, einkum \u00feegar h\u00fan sn\u00fdr a\u00f0 pers\u00f3nu manns. \u00dev\u00ed ekki \u00feykir \u00feetta alltaf mikill mannkostur, a\u00f0 vera sens\u00edt\u00edvur. E\u00f0a hva\u00f0 \u00e6tli b\u00f6rn f\u00e1i oft a\u00f0 heyra fr\u00e1 fullor\u00f0nu f\u00f3lki a\u00f0 \u00feau s\u00e9u \u201egrenjuskj\u00f3\u00f0ur\u201c?<\/p>\n<p>\u00deegar ma\u00f0ur horfir \u00e1 svona upp\u00e1komur, t.d. sem hlutlaus observant \u00e1 leikv\u00f6llum, s\u00e9r ma\u00f0ur \u00fea\u00f0 sem \u00feetta er \u00ed raun og veru. Barni\u00f0 hagar s\u00e9r eins og barn. Stundum gr\u00e6tur \u00fea\u00f0. What else is new? En \u00fea\u00f0 er s\u00e1 fullor\u00f0ni sem fer \u00e1 taugum og \u00fe\u00e1 \u00fearf a\u00f0 beita \u00f6llum br\u00f6g\u00f0um til a\u00f0 st\u00f6\u00f0va \u201ehelv\u00edtis v\u00e6li\u00f0\u201c og \u00e1hrifar\u00edkast og flj\u00f3tlegast er au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 sm\u00e1na barni\u00f0 til hl\u00fd\u00f0ni:<\/p>\n<p>\u201eHva, ertu a\u00f0 sk\u00e6la?\u201c<\/p>\n<p>\u201eH\u00e6ttu \u00feessu v\u00e6li!\u201c<\/p>\n<p>\u201eErtu sm\u00e1stelpa!\u201c<\/p>\n<p>Og svona b\u00faum vi\u00f0 til har\u00f0hausana. Pabbana sem geta ekki gr\u00e1ti\u00f0.<\/p>\n<p>&#8230;<\/p>\n<p>\u00c9g \u00e1 minningu af pabba m\u00ednum a\u00f0 tala vi\u00f0 einhvern \u00ed s\u00edma daginn sem mamma hans, amma m\u00edn, d\u00f3. \u00c9g held a\u00f0 \u00feetta hafi veri\u00f0 D\u00f3ri br\u00f3\u00f0ir hans. \u00deeir voru a\u00f0 gera erfi\u00f0an dag upp og pabbi var a\u00f0 segja hluti sem \u00e9g haf\u00f0i aldrei heyrt hann segja. Hann var \u00e1 pers\u00f3nulegu n\u00f3tunum en hann var n\u00fa eiginlega bara sk\u00f3lab\u00f3kard\u00e6mi um mann sem bar harm sinn \u00ed hlj\u00f3\u00f0i, hugsa \u00e9g.<\/p>\n<p>\u201eJ\u00e1j\u00e1, og svo f\u00f3r \u00e9g bara grenja eins og aumingi. \u00c9g ver\u00f0 bara a\u00f0 vi\u00f0urkenna \u00fea\u00f0,\u201c sag\u00f0i hann allt \u00ed einu.<\/p>\n<p>\u00deetta var svo \u00f3v\u00e6nt a\u00f0 \u00e9g gat ekki gleymt \u00feessu en \u00e9g vissi ekki hvers vegna m\u00e9r fannst \u00feetta merkilegt fyrr \u00e9g var\u00f0 nokkrum \u00e1rum eldri.\u00a0Lengi vel fannst m\u00e9r \u00feetta til marks um h\u00f6rkuna, a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0finnsluvert a\u00f0 gr\u00e1ta \u201eeins og aumingi\u201c \u00feegar mamma manns deyr en n\u00fana finnst m\u00e9r merkilegt a\u00f0 hann skuli hafa sagt \u00feetta upph\u00e1tt. \u00dea\u00f0 var soldi\u00f0 sens\u00edt\u00edvt hj\u00e1 manni sem kunni ekki a\u00f0 gr\u00e1ta var \u00fea\u00f0 ekki?<\/p>\n<p>Hann var kannski m\u00fdkri en \u00e9g h\u00e9lt en hann \u00feurfti sm\u00e1 skj\u00f3l og kalla\u00f0i \u00feetta \u201eaumingjaskap\u201c.<\/p>\n<p>T\u00f6ffarar sem gr\u00e1ta ekki kl\u00e6\u00f0ast allskonar le\u00f0urj\u00f6kkum.\u00a0<\/p>\n<p>&#8230;<\/p>\n<p>\u00c9g man eftir einni v\u00f6kun\u00f3tt fyrir nokkrum \u00e1rum. \u00deegar Esther var gengin nokkra m\u00e1nu\u00f0i me\u00f0 E og vi\u00f0 vissum ekki hvort vi\u00f0 \u00e1ttum von \u00e1 stelpu e\u00f0a str\u00e1k. Vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um \u00e1tt samtal um kv\u00f6ldi\u00f0 \u00fear sem vi\u00f0 vorum a\u00f0 fab\u00falera um \u00feetta, p\u00e6ldum \u00ed m\u00f6gulegum n\u00f6fnum og svo framvegis. \u00c9g var alveg viss um a\u00f0 \u00feetta yr\u00f0i stelpa en \u00e9g komst a\u00f0 \u00fev\u00ed \u00feessa svefnlausu n\u00f3tt a\u00f0 \u00feetta var \u00f3skhyggja. \u00c9g VILDI eignast a\u00f0ra stelpu. \u00c9g \u00edmynda\u00f0i m\u00e9r a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri l\u00e9ttara fyrir barni\u00f0. \u00dev\u00ed \u00e9g taldi mig vita a\u00f0 ef vi\u00f0 eignu\u00f0umst dreng \u00fe\u00e1 v\u00e6ri l\u00edklegra en ekki a\u00f0 hann l\u00edktist m\u00e9r og \u00fe\u00e1 v\u00e6ri eins gott a\u00f0 hann fyndi s\u00e9r einhvern tilgang me\u00f0 l\u00edfinu \u00fev\u00ed hann myndi ekki a\u00f0 \u00f6llu leyti falla inn \u00ed normi\u00f0.<\/p>\n<p>A\u00f0 vera sens\u00edt\u00edv stelpa, hugsa\u00f0i \u00e9g, er ekki \u00fea\u00f0 sama og a\u00f0 vera sens\u00edt\u00edvur str\u00e1kur.<\/p>\n<p>\u00c9g var hr\u00e6ddur. Var me\u00f0 hugann \u00ed \u00f6\u00f0rum t\u00edma. M\u00ednum t\u00edma. \u00cd m\u00ednu \u201e\u00ed denn\u201c. Mundi eftir sens\u00edt\u00edvu str\u00e1kunum sem meiku\u00f0u \u00feetta ekki. L\u00e9tu sig hverfa \u00e1\u00f0ur en \u00feeir ur\u00f0u almennilega fullor\u00f0nir.<\/p>\n<p>&#8230;<\/p>\n<p>\u00c9g f\u00f3r a\u00f0 \u00edmynda m\u00e9r samt\u00f6l vi\u00f0 \u00fe\u00e1, \u00feessa svefnlausu n\u00f3tt. \u00cdmynda\u00f0i m\u00e9r a\u00f0 \u00e9g g\u00e6ti fari\u00f0 til baka \u00ed t\u00edmav\u00e9l og tala\u00f0 vi\u00f0 \u00fe\u00e1. Hef\u00f0i sagt \u00feeim a\u00f0 slaka \u00e1. Allir b\u00f6mmerar, hef\u00f0i \u00e9g sagt, \u00feeir fjara \u00fat. Allir. Allir sem einn.<\/p>\n<p>Sagt eins og pabbi sag\u00f0i vi\u00f0 mig \u00feegar \u00e9g \u00e6tla\u00f0i, \u00ed minni fyrstu alv\u00f6ru \u00e1starsorg, a\u00f0 henda tr\u00falofunarhring \u00ed kl\u00f3setti\u00f0 heima \u00ed V\u00ed\u00f0im\u00fdri. Hann kom a\u00f0 m\u00e9r og \u00e9g var b\u00f3kstaflega \u00e1 hnj\u00e1num fyrir framan sk\u00e1lina. Hann s\u00e1 hva\u00f0 \u00e9g haf\u00f0i hugsa\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 gera enda h\u00e9lt \u00e9g \u00e1 hringnum og sl\u00f3 honum taktfast \u00ed postul\u00edni\u00f0.\u00a0\u00a0<\/p>\n<p>\u201eEkki gera \u00feetta, J\u00f3n minn,\u201c sag\u00f0i hann. \u201eEftir nokkur \u00e1r finnst \u00fe\u00e9r \u00feetta fyndi\u00f0.\u201c<\/p>\n<p>Pabbi missti \u00feetta \u00fat \u00far s\u00e9r og \u00fea\u00f0 er eins og mig minni a\u00f0 hann hafi be\u00f0ist afs\u00f6kunar fyrir \u00f3n\u00e6rg\u00e6tnina.<\/p>\n<p>\u00c9g held n\u00fana, \u00ed alv\u00f6ru tala\u00f0, a\u00f0 \u00feetta s\u00e9u bestu r\u00e1\u00f0 sem \u00e9g hef fengi\u00f0.<\/p>\n<p>&#8230;<\/p>\n<p>En hef\u00f0u unglingarnir \u00ed fantas\u00edunni teki\u00f0 mark \u00e1 manni eins og m\u00e9r? Sitjandi fyrir framan \u00feau, me\u00f0 a\u00f0ra rasskinn \u00e1 kennarabor\u00f0i. Sj\u00e1lfumgla\u00f0ur fimmtugur karl me\u00f0 g\u00f3\u00f0 r\u00e1\u00f0. Eins og f\u00f6kking Bono \u00ed U2. Eins og Bubbi Morthens.\u00a0<\/p>\n<p>Og j\u00e1, munu b\u00f6rnin m\u00edn hlusta \u00e1 svona \u201epepptalk\u201c?\u00a0<\/p>\n<p>Kannski ekki. Kannski me\u00f0taka \u00feau bara \u00fea\u00f0 sem \u00feeim var ekki \u00e6tla\u00f0. Hlera \u00e1n minnar vitundar og draga s\u00ednar eigin \u00e1lyktanir.\u00a0<\/p>\n<p>&#8230;<\/p>\n<p>St\u00f3\u00f0 upp. Var b\u00fainn a\u00f0 skrifa \u00ed klukkut\u00edma. Horf\u00f0i yfir V\u00edkina. \u00deurfti a\u00f0 m\u00edga. Sem og \u00e9g s\u00ed\u00f0an ger\u00f0i. Meig me\u00f0 \u00feetta l\u00edka \u00fats\u00fdni\u00f0 fyrir framan mig! \u00deetta milda, st\u00edlhreina, \u00fats\u00fdni yfir V\u00f6\u00f0lav\u00edk sem r\u00f6mmu\u00f0 er inn af tveimur austfirskum fj\u00f6llum. M\u00falinn til h\u00e6gri og hitt sem \u00e9g man ekki hva\u00f0 heitir til vinstri. Fr\u00e1 \u00feessu sj\u00f3narhorni vir\u00f0ast \u00feau ekki jafn hrikaleg og \u00feau sum hver eru h\u00e9r eystra. \u00deau eru eiginlega bara frekar settleg fr\u00e1 \u00feessu sj\u00f3narhorni, \u00far \u00feessari fjarl\u00e6g\u00f0. Me\u00f0 mj\u00fakar l\u00ednur. Soldi\u00f0 curvy og gl\u00e6sileg.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 svo d\u00e1samlegt \u00feegar ma\u00f0ur l\u00e9ttir \u00e1 s\u00e9r, hugsa\u00f0i \u00e9g og spr\u00e6ndi. \u00c9g er svo gla\u00f0ur a\u00f0 vera h\u00e9r. H\u00e9r og n\u00fa. 27unda e\u00f0a 28unda j\u00fal\u00ed. \u00dea\u00f0 er allavega \u00e1ri\u00f0 2025 og \u00fea\u00f0 er h\u00e1sumar. \u00c9g spr\u00e6ni \u00e1n s\u00e1rsauka. \u00dea\u00f0 er ekki sj\u00e1lfgefi\u00f0 fyrir karl \u00e1 m\u00ednum aldri.<\/p>\n<p>Og \u00e9g veit, k\u00e6ra dagb\u00f3k, a\u00f0 \u00feetta m\u00f3ment ver\u00f0ur eftirminnilegt. Svok\u00f6llu\u00f0 \u201ekjarnaminning\u201c. N\u00fdtt or\u00f0 sem Esther kenndi m\u00e9r \u00ed g\u00e6r. \u00cd \u00f6\u00f0ru samhengi samt.\u00a0<\/p>\n<p>(Teyg\u00f0i mig svo \u00ed minnisb\u00f3kina til a\u00f0 tryggja a\u00f0 \u00e9g myndi \u00feetta. \u00deetta g\u00e6ti virka\u00f0 sem ni\u00f0urlag.)<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Kl. 11:00 \u00deetta sem \u00e9g skrifa\u00f0i \u00ed morgun var einskonar hugarleikfimi. Hva\u00f0 gerist \u00ed l\u00edfi manns, s\u00edmaf\u00edkils, \u00feegar hann lendir \u00ed a\u00f0st\u00e6\u00f0um sem \u00feessum? \u00cd \u00f3bygg\u00f0um. \u00cd m\u00ednu eigin Overlook Hotel. H\u00e9r \u00e6tti \u00e9g a\u00f0 skrifa sk\u00e1lds\u00f6gu einhvern t\u00edmann sem v\u00e6ri \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r bara dagb\u00f3k. Hugsanir m\u00ednar eru alveg n\u00f3gu hr\u00e6\u00f0ilegar til a\u00f0 bera <a class=\"read-more\" href=\"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/?p=2739\">&hellip;&nbsp;<span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-2739","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2739","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=2739"}],"version-history":[{"count":10,"href":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2739\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2751,"href":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2739\/revisions\/2751"}],"wp:attachment":[{"href":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=2739"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=2739"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"http:\/\/www.jonknutur.is\/blog\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=2739"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}